Hvað á að kenna í grunnskóla? – mars 2014

Hvað: Menntabúðir þar sem velt er upp spurningunni “Hvað á að kenna í grunnskóla?”. Þátttakendur sjá sjálfir um efnið.

Hvenær: Miðvikudaginn 5. mars 2014 kl. 15:00 – 18:00.

Hvar: Menntaskólanum að Laugarvatni.

Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru grunn- g framhaldsskólakennarar í náttúrufræðigreinum.

Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.

Hvernig: Þátttakendur koma ýmist með framlag eða ekki. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.

Tilkynning: Tilkynninguna má nálgast hér fljótlega.

Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.

Skráning: Skráning fer fram hér.