Líffræði mannslíkamans, líffæra- og lífeðlisfræði – október 2013

 

Afrakstur menntabúðanna má finna hér.

Hvað: Menntabúðir um líffræði mannslíkamans, líffæra- og lífeðlisfræði. Þátttakendur sjálfir sjá um efnið.

Hvenær: Mánudaginn 28. október 2013 kl. 15:00 – 18:00.

Hvar: Réttarholtsskóli, Réttarholtsvegi, 108 Reykjavík.

Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru náttúru- og líffræðikennarar í grunn- og framhaldsskólum.

Hvers vegna: Til að læra hvert af örðu, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.

Hvernig: Þátttakendur eru tvenns konar; með og án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju. Að sýna vel heppnaða verklega tilraun eða brot út kennslu væri tilvalið.

Tilkynning: Tilkynninguna má nálgast hér.

Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.

Skráning: Skráning fer fram hér.

 

 

One thought on “Líffræði mannslíkamans, líffæra- og lífeðlisfræði – október 2013

  1. Pingback: Menntabúðir um | Náttúrutorg

Comments are closed.