Nýjar leiðir með upplýsingartækni – desember 2013

 

Afrakstur menntabúðanna má finna hér.

Hvað: Menntabúðir um nýjar leiðir með upplýsingatækni í náttúrufræði-/raunvísindakennslu. Þátttakendur sjálfir sjá um efnið.

Hvenær: Fimmtudaginn 5. desember 2013 kl. 15:00 – 18:00.

Hvar: Háteigsskóli, Háteigsvegi, 105 Reykjavík.

Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru framhaldsskólakennarar í raungreinum og grunnskólakennarar í náttúrufræðigreinum.

Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.

Hvernig: Þátttakendur eru tvenns konar; með og án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.

Tilkynning: Tilkynninguna má nálgast hér.

Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.

 

Skráning: Skráning fer fram hér.

Dæmi um forrit sem skoða má í menntabúðum um upplýsingatækni.