Vatn – hvernig nálgumst við það sem viðfangsefni í kennslu?

 

Afrakstur menntabúðanna má finna hér.

Hvað: Menntabúðir um vatn.  Hvernig nálgumst við vatn sem viðfangsefni í kennslu? Vatn kemur við sögu allsstaðar, í stað þess að hugsa um afmarkaðar kennslugreinar ætlum við að nálgast eitt viðfangsefni frá mismunandi sjónarhornum.

Hvenær: Fimmtudaginn 3. apríl 2014 kl. 15:00 – 18:00.

Hvar: Sunnulækjarskóla, Selfossi.

Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru framhaldsskólakennarar í raungreinum og grunnskólakennarar í náttúrufræðigreinum.

Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.

Hvernig: Þátttakendur geta verið með eða án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.

Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.

Skráning: Skráning fer fram hér.

Vatn