Lífheimurinn – kennsluhugmyndir – febrúar 2014

 

Afrakstur menntabúðanna má finna hér.

Hvað: Menntabúðir um kennsluhugmyndir með kennslubókinni Lífheimurinn. Þátttakendur sjálfir sjá um efnið.

Hvenær: Fimmtudaginn 6. febrúar 2014 kl. 15:00 – 17:00.

Hvar: Snælandsskóli, Víðigrund, 200 Kópavogi. Í stofu B2 (náttúrufræðistofu).

Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru grunnskólakennarar í náttúrufræðigreinum á unglingastigi.

Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.

Hvernig: Þátttakendur eru tvenns konar; með og án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.

Tilkynning: Tilkynninguna má nálgast hér.

Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.

Skráning: Skráning fer fram hér.

One thought on “Lífheimurinn – kennsluhugmyndir – febrúar 2014

  1. Pingback: Meiri menntabúðir | Náttúrutorg

Comments are closed.