Verkleg eðlisfræði – hvað virkar? – febrúar 2014

 

Afrakstur menntabúðanna má finna hér.

Hvað: Menntabúðir um hvað virkar í verklegri eðlisfræðikennslu. Þátttakendur sjálfir sjá um efnið.

Hvenær: Miðvikudagur 12. febrúar 2014, kl. 15:00 – 18:00.

Hvar: Menntaskólanum við Hamrahlíð, Reykjavík.

Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru framhaldsskólakennarar í raungreinum og grunnskólakennarar í náttúrufræðigreinum.

Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.

Hvernig: Þátttakendur eru tvenns konar; með og án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.

Tilkynning: Tilkynninguna má nálgast hér.

Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.

 

Skráning: Skráning fer fram hér.