Hvað: Menntabúðir þar sem velt er upp spurningunni “Hvað á að kenna í grunnskóla?”. Þátttakendur sjá sjálfir um efnið.
Hvenær: Miðvikudaginn 5. mars 2014 kl. 15:00 – 18:00.
Hvar: Menntaskólanum að Laugarvatni.
Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru grunn- g framhaldsskólakennarar í náttúrufræðigreinum.
Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.
Hvernig: Þátttakendur koma ýmist með framlag eða ekki. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.
Tilkynning: Tilkynninguna má nálgast hér fljótlega.
Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.
Skráning: Skráning fer fram hér.