Afrakstur menntabúðanna má finna hér.
Hvað: Menntabúðir um vatn. Hvernig nálgumst við vatn sem viðfangsefni í kennslu? Vatn kemur við sögu allsstaðar, í stað þess að hugsa um afmarkaðar kennslugreinar ætlum við að nálgast eitt viðfangsefni frá mismunandi sjónarhornum.
Hvenær: Fimmtudaginn 3. apríl 2014 kl. 15:00 – 18:00.
Hvar: Sunnulækjarskóla, Selfossi.
Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru framhaldsskólakennarar í raungreinum og grunnskólakennarar í náttúrufræðigreinum.
Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.
Hvernig: Þátttakendur geta verið með eða án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.
Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.
Skráning: Skráning fer fram hér.