Útdráttur af dagskrá og umfjöllun
18. mars 2015 – Háteigsskóla
- Stjörnufræði og sólmyrkvi – Pedro Russo, Universe Awareness og Edward Gomez, LCOGT
- Sólmyrkvinn 20. mars
– Allar upplýsingar um sólmyrkvann, sólmyrkva almennt, sólmyrkvagleraugu, kennsluhugmyndir o.fl. má finna á Stjörnufræðivefnum www.stjornufraedi.is
– 20. mars 2015 verður sólmyrkvahátíð fyrir utan aðalbyggingu Háskóla Íslands. Klukkan 17:00 hefjast síðan tveir fyrirlestrar í Hátíðasal Háskóla Íslands í tilefni af Alþjóðlegu ári ljóssins. Þar flytur Babak Tafreshi erindi um ljósmyndun næturhiminsins frá ýmsum stöðum á Jörðinni. Að erindi hans loknu flytur Mark McCaughrean, yfirmaður rannsókna- og geimkönnunar hjá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) fyrirlestur um rannsóknir Rosetta geimfarsins og könnun sólkerfisins.
– Kassinn Universe in a box er fáanlegur í gegnum síðuna unawe.org/resources/universebox.
– Kennarar sem vilja fá jarðarboltann geta haft samband við Sævar á saevar(hjá)stjornuskodun.is.
– Allir kennarar eru hvattir til að fara út með nemendum sínum og fylgjast með sólmyrkvanum.