Útdráttur af dagskrá og umfjöllun
5. mars 2015 – Veðurstofa Íslands
- Veðurfræði í skólastarfi – Haraldur Ólafsson, Veðurstofu Íslands
Bók um veðurfræði eftir Markús Á. Einarsson veðurfræðing er gott rit sem unnt er að nota í kennslu.
Veðurstofan hefur hannað spáleik sem gott er að nota í kennslu. Hann er rafrænn á vef Veðurstofunnar þar sem spáð er fyrir um veðrið á völdum stöðum. Kennarar geta haft samband við Guðrúnu Nínu Petersen hjá Veðurstofunni (gnp(hjá)vedur.is), og óskað eftir því að leikurinn sé keyrður.
Gagnabanka Veðurstofunnar má finna á brunnur.vedur.is. Sérstaklega getur verið gott að nota spákortin í kennslu: brunnur.vedur.is/kort/spakort.
- Nytsamlegt vindakort – Margrét Hugadóttir, Langholtsskóla
Gagnleg síða sem sýnir vindakort myndrænt: http://earth.nullschool.net/
- Veður í kennslu – Fjalar Freyr Einarsson, Varmárskóla
Hefti sem gott er að notast við í kennslu: Blikur á lofti eftir Einar Sveinbjörnsson.
Nemendur hafa unnið markvísleg verkefni um veðrið í Varmárskóla undanfarin ár.
- Sólmyrkvinn 20. mars nk. – Sævar Helgi Bragason, Stjörnufræðivefurinn
– Allar upplýsingar um sólmyrkvann, sólmyrkva almennt, sólmyrkvagleraugu, kennsluhugmyndir o.fl. má finna á Stjörnufræðivefnum www.stjornufraedi.is
– Sólmyrkvinn verður sendur út í beinni útsendingu á Stjörnufræðivefnum www.stjornufraedi.is ef sky kynni að þungskýjað verði hjá einhverjum.
– Allir grunnskólar fá gefins sólmyrkvagleraugu. Helgina 7.-8. mars verða sólmyrkvagleraugu seld í Kringlunni og kosta 500 kr. Nánari upplýsingar um gleraugun fá finna hér ásamt pöntunarformi fyrir skóla. Athugið að sólgleraugu eða 3D-gleraugu gefa ekki góða vörn fyrir augað.
– 20. mars nk. verður sólmyrkvahátíð fyrir utan aðalbyggingu Háskóla Íslands. Klukkan 17:00 hefjast síðan tveir fyrirlestrar í Hátíðasal Háskóla Íslands í tilefni af Alþjóðlegu ári ljóssins. Þar flytur Babak Tafreshi erindi um ljósmyndun næturhiminsins frá ýmsum stöðum á Jörðinni. Að erindi hans loknu flytur Mark McCaughrean, yfirmaður rannsókna- og geimkönnunar hjá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) fyrirlestur um rannsóknir Rosetta geimfarsins og könnun sólkerfisins.
– Kassinn Universe in a box er fáanlegur í gegnum síðuna unawe.org/resources/universebox.
– Kennarar sem vilja fá jarðarboltann geta haft samband við Sævar á saevar(hjá)stjornuskodun.is.
– Fjallað verður um stjörnufræði í kennslu í Landanum á RÚV sunnudaginn 8. mars 2015. Sjá hér.
– Allir kennarar eru hvattir til að fara út með nemendum sínum og fylgjast með sólmyrkvanum.