FRESTAÐ TIL HAUSTSINS
FRESTAÐ TIL HAUSTSINS
DAGSKRÁ
- Aðalbjörg Ólafsdóttir verkefnisstjóri útikennslunnar við Sæmundarskóla mun segja okkur stuttlega frá því hvernig útikennslan er skipulögð í skólanum
- Umræður
- Hrefna Sigurjónsdóttir frá Menntavísindasviði mun ganga með þátttakendum um útikennslusvæði Sæmundarskóla og vekja m.a. athygli á áhugverðum viðfangsefnum í útikennslu
- Kaffispjall þar sem kennarar geta skipts á skoðunum og útikennsluverkefnum
Námsbækurnar : Líf á landi og Lífríkið í fersku vatni eru hafðar til hliðsjónar en geta nýst öllum skólastigum.
Menntabúðir byggjast á jafningjafræðslu, þar sem þátttakendur eða kennarar skiptast á skoðunum og kennsluhugmyndum. Þetta verður með öðru sniði í þetta sinn. Skoðanir og reynsla kennara eru enn aðalatriðið en til viðbótar fáum við fræðslu frá Hrefnu og Aðalbjörgu.
Skráning: Skráning fór fram hér. Auglýsingu má nálgast hér.
Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.