Grunnþátturinn sjálfbærni – verkefni sem virka – apríl 2014

 

Afrakstur menntabúðanna má finna hér.

Hvað: Menntabúðir um verkefni sem virka hvað grunnþáttinn sjálfbærni varðar. Þátttakendur sjálfir sjá um efnið.

Hvenær: Miðvikudaginn 7. maí  2014 kl. 14:30 – 16:00. (áttu upphaflega að vera fimmtudaginn 10. apríl)

Hvar: Ingunnarskóla, Maríubaugi 1, 113 Reykjavík.

Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru grunnskólakennarar á mið- og unglingastigi.

Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.

Hvernig: Þátttakendur eru tvenns konar; með og án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.

Tilkynning:  Menntabudir_april_sjalfbaerni

Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.

Skráning: Skráning fer fram hér.