Afrakstur menntabúðanna má finna hér.
Hvað: Menntabúðir um hvað virkar í verklegri efnafræðikennslu. Þátttakendur sjálfir sjá um efnið.
Hvenær: Fimmtudaginn 13. mars 2014 kl. 15:00 – 18:00.
Hvar: Austurbæjarskóli, Barónsstíg 32, 101 Reykjavík.
Hver: Allir eru velkomnir. Markhópurinn eru framhaldsskólakennarar í raungreinum og grunnskólakennarar í náttúrufræðigreinum.
Hvers vegna: Til að læra hvert af öðru, fá kennsluhugmyndir til eigin kennslu, deila góðu hugmyndunum með öðrum og efla samfélag kennara. Lokamarkmiðið er að efla náttúrufræðimenntun barna og unglinga.
Hvernig: Þátttakendur eru tvenns konar; með og án framlags. Við hvetjum sem flesta til að sýna eða segja frá einhverju.
Tilkynning: Tilkynninguna má nálgast hér.
Utanumhald: Menntabúðirnar eru skipulagðar af verkefninu NaNO innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samvinnu við Náttúrutorg.
Skráning: Skráning fer fram hér.